Hoppa yfir valmynd
16. ágúst 2004 Matvælaráðuneytið

Tilkynning til sveitarstjórna um úthlutun byggðakvóta

Tilkynning til sveitarstjórna

um úthlutun byggðakvóta.

Á grundvelli 1. mgr. 9. gr. laga um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, hefur sjávarútvegsráðherra ákveðið að á fiskveiðiárinu 2004/2005 skuli allt að 3.200 þorskígildum samtals ráðstafað til stuðnings byggðarlögum þannig:

1. Til minni byggðarlaga, sem lent hafa í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi og háð eru veiðum og vinnslu á botnfiski. Minni byggðarlög teljast í þessu sambandi byggðarlög með færri íbúum en 1.500.

2. Til byggðarlaga, sem orðið hafa fyrir óvæntri skerðingu á heildaraflaheimildum fiskiskipa, sem gerð hafa verið út og landað afla í viðkomandi byggðarlögum, og sem veruleg áhrif hefur haft á atvinnuástand í þeim.

Með tilkynningu þessari vill ráðuneytið gefa sveitarstjórnum kost á að sækja um byggðakvóta. Sveitarstjórnir eru umsóknaraðilar fyrir byggðarlögin innan sveitarstjórnarumdæmanna og annast þær öll samskipti við ráðuneytið, sem nauðsynleg eru vegna úthlutunarinnar. Umsóknarfrestur um byggðakvóta er til 1. október 2004. Umsóknir sem berast eftir verða ekki teknar til greina.

Sæki sveitarstjórn um aflaheimildir til stuðnings tilteknu byggðarlagi, sem hefur færri íbúa en 1.500, sbr. 1. tl. hér að ofan, skal sveitarstjórn gera ráðuneytinu ítarlega grein fyrir vanda byggðarlagsins sem talið er að rekja megi til samdráttar í sjávarútvegi á síðustu árum og fyrir þýðingu veiða og vinnslu botnfisks fyrir það byggðarlag.

Sveitarstjórnir, sem sækja um aflaheimildir vegna óvæntra skerðinga í heildaraflaheimildum fiskiskipa í tilteknu byggðarlagi, sbr. 2. tl. hér að ofan, skulu leggja fram gögn, sem sýna fram á að í tilteknu byggðarlagi hafi óvænt skerðing heildaraflaheimilda fiskiskipa, sem gerð eru þaðan út og landað hafa þar afla, haft veruleg neikvæð áhrif á atvinnuástand í viðkomandi byggðarlagi.

Að fengnum umsóknum sveitarfélaga tekur ráðuneytið ákvörðun um hvernig byggðakvótinn skiptist milli einstakra byggðarlaga og tilkynnir sveitarstjórnum niðurstöðuna. Jafnframt verður sveitarstjórnum þá gefinn kostur á því að gera tillögur um skiptingu byggðakvótans milli fiskiskipa.

 

Sjávarútvegsráðuneytið, 16. ágúst 2004.

 

 

 

 



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum