Hoppa yfir valmynd
25. ágúst 2004 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Evrópumiðstöð fyrir þróun í sérkennslu

Evrópumiðstöð fyrir þróun í sérkennslu er sjálfstæð stofnun sem menntamálaráðuneyti 22 þátttökulanda standa að, þ.m.t. Íslands.

Til grunnskóla, framhaldsskóla, skólaskrifstofa og ýmissa annarra aðila

Hjálagt er nýjasta fréttabréf Evrópumiðstöðar fyrir þróun í sérkennslu (The European Agency for Development in Special Needs Education), Euronews nr. 11, sem gefið hefur verið út á þjóðtungum allra þeirra landa sem aðild eiga að miðstöðinni. Einnig fylgir nýtt kynningarefni um helstu verkefni Evrópumiðstöðvarinnar.

Evrópumiðstöð fyrir þróun í sérkennslu er sjálfstæð stofnun sem menntamálaráðuneyti 22 þátttökulanda standa að, þ.m.t. Íslands. Eitt meginmarkmið með starfsemi Evrópumiðstöðvarinnar er að stuðla að umbótum í sérkennslu í Evrópu og auka samstarf Evrópulanda á því sviði.

Þess er vænst að ofangreint efni verði kynnt í stofnun yðar eða samtökum.

Einnig er bent á vefsíðu Evrópumiðstöðvarinnar: http://www.european-agency.org

Bryndís Sigurjónsdóttir aðstoðarskólameistari Borgarholtsskóla er sérstakur samstarfsaðili Evrópumiðstöðvarinnar fyrir Íslands hönd. Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér frekar starfsemina er bent á netfang hennar [email protected]



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum