Heilbrigðisþing 2003: Fyrirlestrar aðgengilegir á netinu
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið hefur gefið út ritið Heilbrigðisþing 2003 – Háskólasjúkrahús á Íslandi – Framtíðarsýn, hlutverk og samfélagsleg ábyrgð. Í ritinu er að finna þá sautján fyrirlestra sem haldnir voru á þinginu en þeir fjalla um háskólasjúkrahús framtíðarinnar, kröfur sem gerðar eru til háskólasjúkrahúss, um kennslu, rannsóknir og þjónustu háskólasjúkrahúss í framtíðinni, og um afstöðu fagstétta, samtaka sjúklinga, aðstandenda og nemenda til þess hvernig byggja á upp háskólasjúkrahús framtíðarinnar. Ritið er að finna á heimasíðu ráðuneytisins undir hlekknum útgefið efni.
Heilbrigðisþing 2003: Fyrirlestrar sérfræðinga