Auglýst námskeið í stjórnsýslurétti
Stjórnsýsluréttur fyrir starfsmenn stjórnsýslu ríkisins - námskeið í október og nóvember 2004
Forsætisráðuneytið mun í samstarfi við Félag forstöðumanna ríkisstofnana og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands bjóða upp á sex vikna námskeið í október og nóvember nk. um stjórnsýslulögin og stjórnsýslurétt fyrir þá starfsmenn ríkisins sem koma að meðferð mála og undirbúningi ákvarðana í stjórnsýslunni. Námskeiðið getur einnig nýst starfsfólki sveitarfélaga og stendur þeim opið. Nemendur munu hlýða á fyrirlestra, taka þátt í umræðum, lesa kennslurit og vinna heimaverkefni. Umsjónarmaður og aðalkennari verður Páll Hreinsson lagaprófessor.
Nánari upplýsingar eru birtar á heimasíðu ráðuneytisins: www.forsaetisraduneyti.is
Í Reykjavík, 17. september 2004