Hoppa yfir valmynd
1. október 2004 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Frestun samræmdra prófa í 4. og 7. bekk haustið 2004 - Dreifibréf

Dreifibréf sent skólastjórum og skólanefndum grunnskóla.

Til skólastjóra og skólanefnda grunnskóla

 

Vegna yfirstandandi verkfalls grunnskólakennara, hefur menntamálaráðuneytið ákveðið að fresta samræmdum prófum í íslensku og stærðfræði í 4. og 7. bekk grunnskóla, sem halda átti dagana 14. og 15. október nk.

Menntamálaráðuneytið mun senda skólum bréf með nýjum dagsetningum þegar kennsla hefst aftur að loknu verkfalli. Munu prófin ekki verða haldin fyrr en a.m.k. tvær kennsluvikur eru liðnar frá lokum verkfalls.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum