Stjórn rjúpnaveiða styrkt
Á blaðamannafundi í dag skýrði Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra frá því að hún hefur ákveðið að leggja fram á Alþingi í haust frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum með það að markmiði að styrkja stjórnun rjúpnaveiða. Ef frumvarpið verður að lögum og ekkert óvænt kemur fram um ástand rjúpnastofnsins á næsta ári, er gert ráð fyrir að rjúpnaveiðar hefjist á ný samkvæmt breyttum lögum haustið 2005. Þangað til verður rjúpan friðuð, enda þykir reynslan sýna að stjórn rjúpnaveiða skv. gildandi lögum hafi ekki dugað til að koma í veg fyrir ofveiði og tryggja sjálfbærar veiðar á rjúpunni.
Umhverfisráðherra telur mikilvægt að tryggja að rjúpnaveiðar verði sjálfbærar þegar þær hefjast á ný og að ekki þurfi að grípa aftur til tímabundinna friðunaraðgerða eins og nú er raunin. Til að ná þessu fram hefur ráðherra falið svokallaðri rjúpnanefnd að semja frumvarp það sem getið er um hér að ofan og hefur óskað þess að nefndin skili tillögum sínum um lagabreytingar fyrir 15. nóvember næst komandi. Reiknað er með því að nýtt stjórnkerfi rjúpnaveiða geti orðið fyrirmynd að stjórn veiða úr öðrum fuglastofnum í framtíðinni eftir því sem aðstæður krefjast. Við vinnu sína er því beint til rjúpnanefndar að hún skoði eftirfarandi þætti sérstaklega:
a) Heimild til að banna sölu rjúpna og rjúpnaafurða.
b) Heimild til að kvótabinda rjúpnaveiðar.
c) Takmörkun á notkun farartækja.
d) Hugsanlegar breytingar á veiðitíma, þ.e. upphaf og endir hefðbundins veiðitíma.
Auk þess sem rjúpnanefndinni hefur verið falið að semja frumvarp hefur þess verið farið á leit við hana að hún ljúki öðrum verkum eigi síðar en 1. júní 2005. Er þar einkum átt við tillögur um stofnun griðlanda eða friðlanda á varp- eða vetrarstöðvum rjúpunnar, sem komið gætu til framkvæmda um leið og veiðar hæfust á ný. Með þessari ákvörðun er störfum rjúpnanefndar flýtt um hálft ár.
Eins og kunnugt er ákvað þáverandi umhverfisráðherra að friða rjúpu gegn veiðum árin 2003-2005 og byggðist þessi ákvörðun í meginatriðum á tveimur þáttum. Annars vegar á mati Náttúrufræðistofnunar Íslands á ástandi rjúpnastofnsins frá því í ágúst 2002, rjúpnatalningum vorið 2003 og nýju endurmati á ástandi stofnsins sem byggði m.a. á veiðitölum undanfarinna ára. Hins vegar á því að Alþingi hafði ekki fallist á tillögur um að takmarka rjúpnaveiðar með sölubanni á rjúpu, en umhverfisnefnd Alþingis hafði lagt til að leitað yrði annarra leiða við að vernda rjúpnastofninn. Um leið og tilkynnt var um friðun rjúpunnar var skýrt frá ákvörðun um að skipa nefnd til að gera tillögur um fyrirkomulag veiðanna að loknu friðunartímabili, svokallaða rjúpnanefnd. Í nefndinni sitja fulltrúar frá Náttúrufræðistofnun Íslands, Umhverfisstofnun, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Fuglaverndarfélagi Íslands, Skotveiðifélagi Íslands, Bændasamtökum Íslands og umhverfisráðuneytinu.
Friðun rjúpunnar fyrir veiðum hefur verið umdeild þó að ekki hafi verið ágreiningur um að til einhverra aðgerða þyrfti að grípa vegna ástands rjúpnastofnsins. Með ákvörðun ráðherra nú er lagður varanlegur grunnur að stjórnun rjúpnaveiða sem á að tryggja að hægt verði að stilla veiðar hverju sinni að ástandi rjúpnastofnsins og tryggja á þann hátt sjálfbærar veiðar. Við ákvörðun á fyrirkomulagi, veiðitíma og eftirliti með veiðunum hverju sinni mun ráðuneytið njóta ráðgjafar Náttúrufræðistofnunar og Umhverfisstofnunar. Þessi ákvörðun þýðir jafnframt að rjúpnastofninn fær að vaxa óáreittur fyrir skotveiðum eitt ár enn áður en veiðar hefjast á ný.
Rannsóknir Náttúrufræðistofnunar á þessu ári sýna að rjúpnastofninn hefur styrkst mikið og samkvæmt talningu hefur hann ríflega tvöfaldast milli áranna 2003 og 2004. Frekari rannsóknir standa yfir á rjúpnastofninum og til að þær megi halda áfram eins og áformað var, þrátt fyrir minnkandi tekjur Veiðikortasjóðs þar sem virkum veiðimönnum hefur fækkað, hefur verið lagt til að aukið fé verði veitt til rjúpnarannsókna á fjáraukalögum 2004 og fjárlögum 2005. Þá er áformað að tillögu rjúpnanefndar að fá hingað til lands erlendan sérfræðing til að fara yfir rannsóknarniðurstöður Náttúrufræðistofnunar Íslands um ástand rjúpnastofnsins. Víðtæk sátt er meðal hagsmunaaðila og vísindamanna um að fá aðstoð þessa erlenda sérfræðings og er stefnt að því að hann skili niðurstöðum sínum snemma á næsta ári. Loks mun stofnlíkan rjúpunnar, sem Náttúrufræðistofnun Íslands hefur unnið að, verða tilbúið fyrir næstu áramót auk þess sem gert er ráð fyrir að niðurstöður rannsókna á veiðiafföllum liggi endanlega fyrir vorið 2005. Ef ekkert óvænt kemur fram um ástand rjúpnastofnsins í þeim rannsóknum sem munu standa yfir á stofninum fram á næsta ár, og munu raunar halda áfram eftir það, telur umhverfisráðherra ekkert því til fyrirstöðu að sjálfbærar veiðar í breyttu lagaumhverfi geti hafist næsta haust.
Fréttatilkynning nr. 40/2004
Umhverfisráðuneytið