Hoppa yfir valmynd
20. október 2004 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Dagur íslenskrar tungu 2004, 16. nóvember

Menntamálaráðuneytið hefur beitt sér fyrir sérstöku átaki í þágu íslensks máls 16. nóvemer ár hvert.

Ágæti viðtakandi

Frá því að ákveðið var að fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar, 16. nóvember, yrði dagur íslenskrar tungu ár hvert hefur menntamálaráðuneytið árlega beitt sér fyrir sérstöku átaki í þágu íslensks máls og helgað þennan dag rækt við það, í góðu samstarfi við skóla, stofnanir, fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga enda virðist dagur íslenskrar tungu hafa náð fótfestu í samfélaginu.

Hér með er hvatt til þess að landsmenn hugi nú, eins og undanfarin ár, að því að nota 16. nóvember eða dagana þar í kring til að hafa íslenskuna í öndvegi. Hægt er að minnast dagsins með margvíslegu móti, t.d. upplestri, ritunarsamkeppni, verðlaunum og viðurkenningum, handritasýningum, samkomum af ýmsum toga og tónlistarflutningi svo að fátt eitt sé nefnt.

Menntamálaráðuneytið hefur falið Íslenskri málstöð að annast ýmsa verkþætti í tengslum við viðburði á degi íslenskrar tungu 2004. Viðtakendum þessa bréfs er velkomið að hafa samband við málstöðina ([email protected], s. 552 8530) ef spurningar vakna og einnig væri gagnlegt að heyra frá sem flestum um það hvað stendur til að gera í tilefni dagsins. Heimasíða dags íslenskrar tungu er: http://mrn.stjr.is/malaflokkar/Menning/dit/. Þar er m.a. hugmyndabanki kennara og upplýsingar um Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar sem menntamálaráðherra afhendir árlega 16. nóvember.

Dæmi um viðburði undanfarin ár:

Leikskólar: Samverustund á sal í tilefni dagsins; unnið sérstaklega með íslenskt mál eina viku; rætt um skáldið Jónas Hallgrímsson; nemendur úr grunnskóla koma í heimsókn og lesa fyrir leikskólabörnin.

Grunnskólar: Stóra upplestrarkeppnin hefur hafist formlega á degi íslenskrar tungu; eldri börnin koma í bekki yngri barna og lesa upp sögur og ljóð; verðlaunahafar úr upplestrarkeppni síðasta árs lesa upp.

Framhaldsskólar: Rithöfundar koma í heimsókn og lesa upp; ljóðaupplestur undir handleiðslu íslenskukennara; sérstök verkefni í vissum áföngum í íslensku; skólakórar með dagskrá.

Bókasöfn: Upplestur úr bókum; handritasýningar; bókakynningar; á degi íslenskrar tungu 2003 notaði Borgarbókasafnið sérstakt bókamerki með hluta úr ljóði eftir Jónas.

Leikarar úr Þjóðleikhúsinu hafa heimsótt grunnskóla í Reykjavík og lesið fyrir nemendur nokkur ljóð íslenskra höfunda skólunum að kostnaðarlausu.

Íslensk fyrirtæki hafa í auknum mæli gefið gaum að degi íslenskrar tungu í kynningarstarfi og öðrum þáttum. Má sérstaklega nefna Mjólkursamsöluna og Íslandsbanka í því sambandi.

Með vinsemd og virðingu



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta