Umhverfisráðuneytið flytur
Umhverfisráðuneytið er að flytja úr Vonarstræti 4 og opnar aftur að Skuggasundi 1, þriðjudaginn 2. nóvember nk. Skrifstofur ráðuneytisins verða lokaðar vegna flutninganna föstudaginn 29. október og mánudaginn 1. nóvember. Bent er á að síma- og tölvukerfi ráðuneytisins verða óvirk dagana sem flutningarnir standa yfir en hægt verður að ná sambandi við ráðuneytið í síma 899-9087 ef brýna nauðsyn ber til.
Umhverfisráðuneytið var stofnað árið 1990 og var fyrstu árin staðsett á 4. hæð á Sölvhólsgötu 4. Ráðuneytið flutti þaðan í Vonarstræti 4 , 1. apríl 1992. Frá 1995 hefur ráðuneytið leigt viðbótarhúsnæði, fyrst að Vonarstræti 4b og síðar á 4. hæð Lækjargötu 12 í húsi Íslandsbanka.
Ráðuneytið flytur nú aftur í nágrenni þeirra ráðuneyta sem eru á Arnarhválstorfunni svokölluðu en þar eru fyrir dóms- og kirkjumálaráðuneytið, fjármálaráðuneytið, iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið, landbúnaðarráðuneytið, menntamálaráðuneytið, og sjávarútvegsráðuneytið.
Fréttatilkynning nr. 41/2004
Umhverfisráðuneytið