Norræna skólahlaupið 2004/5
Til skólastjóra grunn- og framhaldsskóla.
Norræna skólahlaupið átti að fara fram á öllum Norðurlöndunum á tímabilinu 15. september til 1. desember n.k. En þar sem skólastarf í grunnskólum á þessum vetri hefur raskast mjög vegna verkfalls grunnskólakennara hefur verið ákveðið að lengja tímabilið til 1. febrúar 2005.
Er því hér með hvatt til þess að allir skólar verði með í Norræna skólahlaupinu 2004/5 en þátttakendur geta valið hve langt þeir hlaupa þ.e. 2.5 km, 5 km eða 10 km .
Meðfylgjandi er skilagrein sem við biðjum ykkur að fylla út og senda okkur þegar hlaupið hefur farið fram.
Allar frekari upplýsingar um Norræna skólahlaupið er að fá hjá íþrótta- og æskulýðsdeild í menntamálaráðuneytinu.