Sænsk -íslenski samstarfssjóðurinn
Árið 2005 verða veittir úr Sænsk-íslenska samstarfssjóðnum nokkrir ferðastyrkir. Markmið sjóðsins er að stuðla að auknu samstarfi Svíþjóðar og Íslands á sviði vísinda, menntunar og menningar.
Um styrki þessa skal sótt á sérstökum eyðublöðum sem fást í menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík og á skrifstofu Norræna félagsins í Stokkhólmi, Box 127 07, S-112 94 Stockholm og þangað skulu umsóknir einnig sendar.Umsóknir skal stíla á stjórn Sænsk-íslenska samstarfssjóðsins.
Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2005. Styrkjunum verður úthlutað í mars.
2. desember 2004
Stjórn Sænsk-íslenska samstarfssjóðsins.