Fjórar reglugerðir um bætur almannatrygginga
Fréttatilkynning nr. 31/2004
Jón Kristjánsson, heilbrigðis-og tryggingamálaráðherra, hefur undirritað fjórar reglugerðir. Taka þrjár gildi 1. janúar 2005 og sú fjórða við birtingu í Stjórnartíðindum. Með gildistöku reglugerðanna hækka í fyrsta lagi frítekjumörk almannatrygginga á næsta ári um 5% frá því sem gildir nú, í öðru lagi eru staðfestar eingreiðslur til elli-og örorkulífeyrisþega í júlí og desember á næsta ári, í þriðja lagi hækka bætur almannatrygginga um 3,5 af hundraði frá og með 1. janúar 2005 og í fjórða lagi hækka fjárhæðir í reglugerð um stofnanaþjónustu fyrir aldraða um 5% frá og með 1. janúar 2005.
Reglugerðirnar:
Reglugerð um eingreiðslur til elli- og örorkulífeyrisþega árið 2005
Reglugerd_um_hækkun_bóta_almannatrygginga
Reglugerð um (14.) breytingu á reglugerð nr. 47/1990 um stofnanaþjónustu fyrir aldraða
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið,
17. desember, 2004
Hjálagt: Fjórar reglugerðir