Samúðarkveðjur til Asíu vegna jarðskjálfta
Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, sendi í dag samúðarkveðjur til stjórnvalda þeirra ríkja sem verst urðu úti vegna náttúruhamfaranna í fyrrinótt. Stjórnvöldum á Indlandi, Sri Lanka, Indónesíu, Tælandi, Maldíveyjum, Malasíu, Bangladesh, Myanmar og Sómalíu voru sendar samúðarkveðjur.
Reykjavík 27. desember 2004