Starf ritara/sérfræðings í íþrótta- og æskulýðsdeild menntamálaráðuneytis
Menntamálaráðuneytið óskar eftir að ráða ritara/sérfræðing til starfa á skrifstofu menningarmála, íþrótta- og æskulýðsdeild. Starfið er fjölþætt og felst í almennum ritara- og skrifstofustörfum auk sérhæfðra verkefna.
Menntunar og hæfniskröfur:
- Háskólapróf
- Mjög góð íslenskukunnátta
- Góð kunnátta í ensku bæði töluðu og rituðu máli og a.m.k. einu Norðurlandamáli, önnur málakunnátta er kostur
- Góð, almenn tölvukunnátta
- Lipurð í mannlegum samskiptum
- Kostur er að viðkomandi hafi reynslu af félagsstörfum
Umsóknarfrestur er til og með 6. febrúar nk. Laun eru skv. kjarasamningi Félags háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins og fjármálaráðherra.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristín Jónsdóttir skrifstofustjóri. Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil sendist menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík.
Menntamálaráðuneytið, 10. janúar 2005.