Hegðunarvandi og geðraskanir barna og unglinga
Ráðstefna á vegum Barnaverndarstofu, Barna- og unglingadeildar LSH, Miðstöðvar heilsuverndar barna og Landlæknisembættisins verður haldin á Grand Hótel í Reykjavík dagana 3. og 4. febrúar 2005. Yfirskrift ráðstefnunnar er Hegðunarvandi og geðraskanir barna og unglinga – Forvarnir, meðferð og samþætting þjónustu.
Til ráðstefnunnar hefur verið boðið þremur erlendum gestum sem flytja fyrirlestra, þeim Poul Nissen sálfræðingi frá Danmörku, Tore Andreassen sálfræðingi og Lars Hammer barna- og unglingageðlækni, sem báðir koma frá Noregi. Auk þess flytja fjölmargir íslenskir sérfræðingar erindi á ráðstefnunni. Í lok fyrri dagsins verða umræður, en ráðstefnunni lýkur með pallborðsumræðum með þátttöku stjórnmálamanna og fulltrúa frá helstu stofnunum sem sinna geðheilbrigði barna og unglinga.
Á heimasíðu landlæknis eru upplýsingar um fyrirkomulag vegna skráningar, þátttökugjald og þar er dagskrá ráðstefnunnar birt.