Boðun á fréttamannafund vegna stuðnings við starfsemi Hafnarfjarðarleikhússins Hermóðs og Háðvarar
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar og Hilmar Jónsson, leikhússtjóri Hafnarfjarðarleikhússins Hermóðs og Háðvarar, boða hér með til fjölmiðlafundar föstudaginn 21. janúar vegna undirritunar samnings til fimm ára um stuðning við starfsemi Hafnarfjarðarleikhússins Hermóðs og Háðvarar.
Fundurinn verður haldinn í Hafnarfjarðarleikhúsinu, Strandgötu 50, Hafnarfirði og hefst stundvíslega kl. 16:30.
Menntamálaráðuneytið, 21. janúar 2005