Hoppa yfir valmynd
27. janúar 2005 Forsætisráðuneytið

Yfirlýsing forsætisráðherra vegna fréttaflutnings um Íraksmál

Forsætisráðherra lýsir furðu á fréttaflutningi fjölmiðla undanfarna daga um aðdraganda þeirrar ákvörðunar íslenskra stjórnvalda að styðja innrás Bandaríkjamanna, Breta og fleiri þjóða í Írak í marsmánuði árið 2003.

Oftar en ekki hefur fréttaflutningurinn einkennst af útúrsnúningum og rangfærslum. Mjög hefur skort á að nákvæmni, vandvirkni og sanngirni hafi verið gætt. Nýjasta dæmið um villandi málflutning birtist í fyrstu frétt í fréttatíma Stöðvar 2 miðvikudagskvöldið 26. janúar sl. Sá fréttaflutningur vekur enn á ný alvarlegar spurningar um vinnubrögð einstakra fréttamanna.

Þar var því haldið fram að málflutningur ríkisstjórnarinnar varðandi yfirlýsingu um stuðning við bandamenn hafi beinlínis verið rangur. Virðist sú ályktun dregin af tæplega tveggja ára gamalli frétt af vefsíðu CNN og því haldið fram að umrædd frétt hafi birst nokkru áður en ákvörðun íslenskra stjórnvalda um stuðning var tekin. Frétt CNN er birt kl 23.29  þann 18. mars að austurstrandartíma í Bandaríkjunum en þá var klukkan 04.29 að morgni 19. mars hér á landi og liðinn meira en hálfur sólarhringur frá því ríkisstjórnarfundi lauk.

Er vandséð af umræddri frétt CNN hvernig hægt er að draga í efa yfirlýsingu forsætisráðherra frá 17. janúar sl. Þvert á móti staðfestir frétt CNN einmitt það sem fram kemur í yfirlýsingunni. Fréttamaður gerði enga tilraun til að hafa samband við forsætisráðuneytið við undirbúning fréttarinnar í því skyni að sannreyna frétt sína, en leyfði sér þó að lýsa yfir að málflutningur ríkisstjórnarinnar hafi beinlínis verið rangur.

Forsvarsmenn Stöðvar 2 hljóta í framhaldi af þessu að biðjast afsökunar. 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta