Hoppa yfir valmynd
9. febrúar 2005 Dómsmálaráðuneytið

112 dagurinn á Íslandi í fyrsta sinn

Merki 112 dagsins
Merki 112 dagsins

Þegar á bjátar höfum við aðgang að geysilega öflugu neti viðbragðsaðila og hjálparliðs í gegnum eitt samræmt neyðarnúmer fyrir landið og miðin – 112. Með einu símtali í 112 er unnt að virkja á augabragði lögreglu, slökkvilið, almannavarnir, Landhelgisgæsluna, sjúkraflutningamenn, lækna, hjálparlið sjálfboðaliða og barnaverndarnefndir. Yfir 300 þúsund erindi bárust 112 á síðasta ári.

Árangur af starfi þessara aðila byggir á hraða, samvinnu og skipulagi. Þeir taka höndum saman um að kynna starfsemi sína föstudaginn 11. febrúar þegar 112 dagurinn er haldinn á Íslandi í fyrsta sinn. Gert er ráð fyrir að 112 dagurinn verði árviss viðburður og beri upp á 11. febrúar ár hvert.

 

Fjölbreytt dagskrá í Smáralind

Viðamikil dagskrá verður í Smáralind í Kópavogi kl. 14-18, annars vegar í göngugötunni og hins vegar á bílaplaninu að norðanverðu, við Smárabíó. Þyrla Landhelgisgæslunnar sýnir meðal annars björgun og lendir á bílaplaninu kl. 15.00.

 

Göngugatan

kl. 14.00 Björn Bjarnason dómsmálaráðherra flytur ávarp

kl. 14.10 Skyndihjálparmaður Rauða krossins 2004

kl. 14.20 Verðlaun í Eldvarnagetraun LSS 2004

kl. 14.30-18.00

  • Sjúkraflutningamenn sýna búnað og mæla blóðsykur gesta
  • Sýnikennsla í skyndihjálp
  • Björgunarsveitarmenn sýna búnað sinn
  • Tækjabíll umferðardeildar ríkislögreglustjórans
  • Kynning á starfsemi 112 og viðbragðsaðila
  • Útkall 2004 – ljósmyndasýning
  • Bein vefútsending frá varðstofum 112 og Fjarskiptamiðstöðvar lögreglu og frá tækjasýningu á bílaplani á 112.is og rls.is

 

Stórbrotin tækjasýning á bílaplaninu við Smárabíó

kl. 15.00-18.00 verða þyrla, sjúkrabíll, slökkvibíll, björgunarbíll, vettvangsstjórabíll lögreglu, sprengjubíll Landhelgisgæslunnar og vélmenni til sprengjueyðingar til sýnis.

kl. 15.00 Landhelgisgæslan og SHS sýna björgun sjúklings í þyrlu.

kl. 16.00 SHS sýnir björgun fólks úr bílflaki með klippum og glennum.

kl. 17.00 Landhelgisgæslan og SHS sýna björgun sjúklings í þyrlu.

 

Opið hús hjá Lögreglunni í Reykjavík að Hverfisgötu 113.

Lögreglan í Reykjavík verður með opið hús að Hverfisgötu 113, uppstillingarsal á 1 hæð, þar sem lögreglan í Reykjavík mun gera grein fyrir tengslun hennar við neyðarlínu 112, Opið verður fyrir almenning milli kl. 14 og 16 auk þess verður í porti lögreglustöðvarinnar sýning á tækjabúnaði lögreglu og fíkniefnahundar sýndir.

 

Opið hús víða um land

Fjöldi viðbragðsaðila víða um land býður almenningi í heimsókn eftir hádegi. Almenningi gefst þá kostur á að ræða við starfsmenn og skoða margvíslegan búnað. Gestum verður víða boðið upp á hressingu.

 

  • Björgunarmiðstöðin Skógarhlíð kl. 14-18
  • Slökkvistöðin á Sauðárkróki kl. 14-18
  • Slökkvistöðin á Ísafirði kl. 14-18
  • Slökkvistöðin á Akureyri kl. 14-18
  • Slökkvistöðin í Keflavík kl. 14-18
  • Lögreglan á Akureyri kl. 14-18
  • Lögreglan í Vestmannaeyjum 14-17
  • Lögreglan á Sauðárkróki kl. 14-18
  • Lögreglan á Blönduósi 14-16
  • Lögreglan og fleiri á Húsavík 13-18


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta