Nr. 3/2005 - Skýrsla nefndar um úttekt á aðstöðu til hestamennsku á landsbyggðinni
Landbúnaðarráðherra, Guðni Ágústsson, boðar til fjölmiðlafundar föstudaginn 18. febrúar 2005, kl. 14:00, að Sörlaskeiði 26, húsnæði Íshesta við Kaldárselsveg í Hafnarfirði.
Kynnt verður skýrsla nefndar sem hafði það hlutverk að gera úttekt á aðstöðu til hestamennsku á landsbyggðinni og leggja fram tillögur um stuðning ríkissjóðs við uppbyggingu hennar. Landbúnaðarráðherra skipaði nefndina skv. ályktun Alþingis frá 15. mars 2003 um sama efni.
Landbúnaðarráðherra og formaður nefndarinnar munu kynna skýrsluna og nefndin sitja fyrir svörum.
Í landbúnaðarráðuneytinu,
17. febrúar 2005
Úthendi vegna skýrslu nefndar um hestamennsku á landsbyggðinni