Hoppa yfir valmynd
14. mars 2005 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Undanþágunefnd grunnskóla

Breyting á skipan nefndarinnar.

Reykjavík, 24. febrúar 2005

Til skólastjóra grunnskóla

Undanþágunefnd grunnskóla er skipuð samkvæmt lögum nr. 86/1998 um lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum grunnskólakennara, framhaldsskólakennara og skólastjóra.

Í nefndinni eiga sæti Sigríður Lára Ásbergsdóttir, deildarsérfræðingur í menntamálaráðuneytinu, formaður, Valgerður Eiríksdóttir, kennari, fulltrúi Kennarasambands Íslands og Kristín Aðalsteinsdóttir, dósent, fulltrúi Háskólans á Akureyri. Áheyrnarfulltrúi er Kristinn Kristjánsson frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Starfsmaður og jafnframt varaformaður er Erla Ósk Guðjónsdóttir, stjórnarráðsfulltrúi í menntamálaráðuneytinu, netfang: [email protected]

 

Sú breyting verður á skipan nefndarinnar fram til janúarloka 2006 að við formennsku í nefndinni tekur Ásta María Reynisdóttir, netfang: [email protected] vegna barneignarleyfis Sigríðar Láru Ásbergsdóttur.

 

Meðfylgjandi sendist yður umsóknareyðublað um heimild til að ráða leiðbeinanda.

 

Nefndin vill ennfremur benda yður á að hægt er að nálgast ítarlegri upplýsingar er lúta að starfi undanþágunefndar grunnskóla á vef menntamálaráðuneytisins www.menntamalaraduneyti.is

 

Vakin er sérstök athygli á að til að afgreiðsla umsókna gangi fljótt og vel er nauðsynlegt að þar til gerð eyðublöð séu vandlega útfyllt og að þær upplýsingar og þau fylgigögn sem beðið er um fylgi með umsókn.

 

Að gefnu tilefni er sérstaklega vakin athygli á eftirfarandi:

a.  að undanþágunefnd veitir eingöngu heimild til undanþágu þegar um er að ræða kennslustarf ekki starf stuðningsfulltrúa

b.  að skv. lögverndunarlögum á starfsheiti og starfsréttindum grunnskólakennara, framhaldsskólakennara og skólastjóra nr. 86/1998 ber að auglýsa öll laus kennslu- og stjórnunarstörf

c.  að afrit af auglýsingum þurfa að fylgja umsókn, þar sem m.a. eru tilgreindar aðalkennslugreinar og aldursstig nemenda

d.  að fáist heimild frá undanþágunefnd til að lausráða starfsmann gildir sú heimild aldrei lengur en til eins árs í senn

e.  að ekki má endurráða slíkan starfsmann án undangenginnar auglýsingar.

 

Sérstaklega er vakin athygli á því að tilgreina ber í umsókn hvort um sund- eða íþróttakennslu er að ræða.

Ófullnægjandi umsókn, sbr. 3. og 4. gr. reglugerðar nr. 751/1998 um undanþágunefnd grunnskóla verður ekki tekin til afgreiðslu.

 

Með ósk um ánægjulegt samstarf,

 

f.h. undanþágunefndar grunnskóla

 

Ásta María Reynisdóttir, formaður



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum