Hoppa yfir valmynd
17. mars 2005 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Fréttatilkynning um eflingu sveitarstjórnarstigsins

Vinna við átak um eflingu sveitarstjórnarstigsins, sem staðið hefur frá því á haustmánuðum 2003, er nú komin vel á veg. Um er að ræða samvinnuverkefni ríkis og sveitarfélaga sem hófst að frumkvæði Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Tekjustofnanefnd skilaði í vikunni tillögum um breytingar á tekjustofnum sveitarfélaga og fjallað verður um þær og fyrirliggjandi tillögur sameiningarnefndar um breytingar á sveitarfélagaskipan á landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga á morgun, föstudaginn 18. mars. Jafnframt hefur verið unnið að athugun á kostum og göllum þess að flytja verkefni á sviði velferðarmála frá ríki til sveitarfélaga en í upphaflegri verkáætlun var ekki gert ráð fyrir því að ákvörðun um hvort af þeim flutningi yrði lægi fyrir fyrr en haustið 2005.

Tillögur tekjustofnanefndar

Í tillögum tekjustofnanefndar er gert ráð fyrir eftirfarandi breytingum á tekjustofnum sveitarfélaga:

1. Viðbótarframlag komi í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga á árunum 2006–2008.

Tillagan skilar sveitarfélögunum 700 m.kr. ár hvert eða alls 2.100 m.kr. á árunum 2006-2008.

Settar verða reglur um úthlutun þessara fjármuna og munu félagsmálaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga koma sér saman um efni þeirra. Framlaginu er ætlað að jafna aðstöðumun sveitarfélaga sem talin eru í mestri þörf, m.a. vegna erfiðra ytri aðstæðna.

2. Undanþágur frá greiðslu fasteignaskatts, sbr. 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, verði afnumdar frá og með 1. janúar 2006 í samræmi við tillögur nefndar frá desember 2001. Álagning fasteignaskatts komi til framkvæmda í áföngum á árunum 2006-2008.

Tillagan skilar sveitarfélögunum 200 m.kr. árið 2006, 400 m.kr. árið 2007 og 600 m.kr. frá og með árinu 2008. Samtals 1.200 m.kr. árin 2006-2008 en varanlega 600 m.kr. á ári frá þeim tíma.

Tekið er fram að ofangreindar fjárhæðir miðast við fasteignamat ársins 2005. Árleg hækkun fasteignamats og fjölgun fasteigna ríkissjóðs leiðir til hækkunar á þessum fjárhæðum en álagningarprósenta mun ekki lækka að sama skapi. Fyrir liggur að reikna út hver álagningarprósentan þarf að vera. Um er að ræða nýjan álagningarflokk, svonefndan c-flokk. Áfram er gert ráð fyrir því að kirkjur og safnaðarheimili, safnahús og hús erlendra ríkja verði undanþegin fasteignaskatti. Í tillögunni er ekki tekin afstaða til hugsanlegra breytinga á álagningu fasteignaskatts af virkjanamannvirkjum.

3. Varasjóði húsnæðismála verði heimilað að auka rekstrar- og söluframlög vegna félagslegra íbúða í eigu sveitarfélaga og aðstoða við úreldingu þeirra. Framlögin koma til greiðslu á árunum 2005, 2006 og 2007.

Tillagan skilar sveitarfélögunum 280 m.kr. á ári eða samtals 840 m.kr. á árunum 2005-2007.

Starfshópur sem mun nánar útfæra ráðstöfun þessara fjármuna er að störfum. Með úreldingu húsnæðis sem stendur autt eða er óíbúðarhæft er unnt að draga úr áframhaldandi þörf sveitarfélaga fyrir rekstrarframlög til félagslega húsnæðiskerfisins. Fjármögnun mun koma af höfuðstól Varasjóðs viðbótarlána og verður til viðbótar framlögum samkvæmt gildandi samkomulagi um Varasjóð húsnæðismála sem verður framlengt um þrjú ár.

4. Gildandi lög um fjárhagslegan stuðning við fráveituframkvæmdir sveitarfélaga verði framlengd til ársins 2008. Sameiginlega verði farið gagnrýnið yfir kröfur um fráveituframkvæmdir sveitarfélaga og kannaðar leiðir til að draga úr kostnaði.

Tillagan skilar sveitarfélögunum 200 m.kr. á ári eða samtals 600 m.kr. á árunum 2006-2008.

Framlögin koma til greiðslu í hlutfalli við fráveituframkvæmdir sveitarfélaganna á árunum 2006–2008 og eru þau liður í að ljúka átaki í fráveitumálum sveitarfélaga. Samhliða verði farið yfir hvort unnt sé að finna leiðir fyrir fámenn sveitarfélög og byggðakjarna til að koma fráveitumálum í viðunandi horf án óheyrilegs tilkostnaðar.

5. Lögum um skráningu og mat fasteigna og tekjustofna sveitarfélaga verði breytt þannig að greiðsla fasteignaskatts hefjist frá næstu mánaðamótum eftir að eign er fyrst metin fasteignamati. Jafnframt verði unnið að endurskoðun á fasteignamati landa og jarða og lagaákvæðum er það varðar.

Tillagan skilar sveitarfélögunum allt að 200 m.kr. í varanlegan tekjuauka á ári, samtals 600 m.kr. á árunum 2006-2008.

Stefnt er að því að leggja fram frumvarp á vorþingi með það að markmiði að ákvæði um upphaf greiðslu fasteignaskatts taki gildi sem fyrst. Fasteignamat landa og jarða verði tekið til endurskoðunar af Fasteignamati ríkisins og því verki lokið eins fljótt og auðið er.

6. Skipuð verði nefnd sem hafi það hlutverk að endurskoða reglur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga einkum m.t.t. breytinga á sveitarfélagaskipan. Nefndin taki mið af sjónarmiðum sem komið hafa fram við vinnu sameiningarnefndar og tekjustofnanefndar. Stefnt verði að því að nefndin ljúki störfum fyrir 1. október 2005.

Tillagan hefur á þessu stigi ekki bein fjárhagsleg áhrif fyrir sveitarfélögin. Vinna tekjustofnanefndar hefur leitt í ljós að aðstöðumunur sveitarfélaga er mikill og breytingar á ráðstöfun fjármuna Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga skipta illa stödd sveitarfélög verulegu máli.

 

Aðrar tillögur og ábendingar

Eins og fram hefur komið hér að framan hefur vinna tekjustofnanefndar leitt í ljós að aðstöðumunur sveitarfélaga er mjög mikill og breytingar á ráðstöfun fjármuna Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga skipta þorra sveitarfélaga meira máli heldur en almennar breytingar á tekjustofnum, á borð við hækkun útsvarsprósentu.

Í fylgiskjali leggur tekjustofnanefnd til ákveðnar forsendur sem hún telur að eigi að hafa að leiðarljósi við endurskoðun jöfnunarsjóðs, s.s. stuðning sjóðsins við víðfeðm fjölkjarna sveitarfélög.

Tillögur tekjustofnanefndar verða nánar útfærðar fyrir lok aprílmánaðar í yfirlýsingu um breytingar á fjárhagslegum samskiptum ríkis og sveitarfélaga. Stefnt er að því að endurskoðun á samstarfssáttmála ríkis og sveitarfélaga verði lokið fyrir sama tíma. Auk tillagna um breytingar á tekjustofnum leggur nefndin til ýmsar mikilvægar breytingar á samskiptum ríkis og sveitarfélaga.

Má þar nefna m.a.:

  • að öll lagafrumvörp og reglugerðir sem varða sveitarfélögin verulega verði kostnaðarmetin og reglur þar að lútandi öðlist gildi þegar árið 2006.  
  • að skipaður verði starfshópur sem er ætlað að kanna hvort lög og reglur sem sett hafa verið á undanförnum árum hafi að geyma of strangar og kostnaðarsamar kröfur gagnvart sveitarfélögunum og gera tillögur um breytingar þar sem við á.
  • að hafin verði vinna við endurskoðun sveitarstjórnarlaga sem miði að því að tryggja vandaðri fjárstjórn sveitarfélaga þar sem gert er ráð fyrir að sérstaklega verði litið til reynslu Norðurlandanna af eftirliti með sveitarfélögum í því sambandi.

Vinna sameiningarnefndar

Í tillögum sameiningarnefndar er gert ráð fyrir því að flest sveitarfélög hér á landi myndi heildstætt atvinnu- og þjónustusvæði og verði nægilega öflug til að sinna helstu lögbundnum og venjubundnum verkefnum sveitarfélaga. Nefndin hefur í starfi sínu haft að leiðarljósi að sem flestir íbúar landsins fái tækifæri til þess að taka afstöðu til hugsanlegar sameiningar á sínu svæði og hljóti allar tillögur nefndarinnar samþykki mun meirihluti sveitarfélaga telja fleiri en 1.000 íbúa og aðeins 9 sveitarfélög hafa færri en 500 íbúa í stað 51 sveitarfélags í dag. Tillögur nefndarinnar gera ráð fyrir því að sveitarfélög á landinu verði 46 að tölu frá og með sveitarstjórnarkosningum 2006, en þau eru nú 101 talsins. Komi þessar breytingar til framkvæmda mun meðalíbúafjöldi í sveitarfélagi hækka úr um 2.800 íbúum að meðaltali í sveitarfélagi í um 6.400 íbúa að meðaltali.

  • Tillögur sameiningarnefndar eru bindandi, þ.e.a.s íbúar munu greiða um þær atkvæði í samræmi við sveitarstjórnarlög nr. 45/1998 með síðari breytingum.
  • Sveitarstjórnir sem sameiningartillaga varðar skulu tilnefna tvo fulltrúa hver í samstarfsnefnd sem undirbýr atkvæðagreiðslu um tillöguna og gerir kynningarefni um áhrif hugsanlegrar sameiningar.
  • Íbúar hvers sveitarfélags skera úr um hvort sveitarfélag þeirra verði sameinað öðrum á grundvelli tillögu sameiningarnefndar.
  • Í frumvarpi sem nú er til umfjöllunar á Alþingi er lagt til að atkvæðagreiðslur um sameiningartillögur fari fram þann 8. október næstkomandi nema samstarfsnefndir leggi til að kosið verði fyrr.  Þó er í frumvarpinu gert ráð fyrir því að kosið verði um sameiningu Borgarbyggðar, Borgarfjarðarsveitar, Hvítársíðuhrepps, Kolbeinsstaðahrepps og Skorradalshrepp þann 23. apríl nk. þar sem markvisst hefur verið unnið að undirbúningi sameiningar þessara sveitarfélaga allt frá árinu 2003.

Flutningur verkefna frá ríki til sveitarfélaga

Verkefnisstjórn átaks um eflingu sveitarstjórnarstigsins kynnti hugmyndir um tilfærslu verkefna milli ríkis og sveitarfélaga í apríl 2004. Frá þeim tíma hefur verið unnið að athugun á kostum og göllum þess að flytja verkefni á sviði velferðarmála frá ríki til sveitarfélaga en ákvörðun um hvort af þeim flutningi verður ekki tekin fyrr en í fyrsta lagi í haust, í samræmi við upphaflega verkáætlun. Áfangaskýrsla um flutning heilbrigðis- og öldrunarþjónustu til sveitarfélaganna var kynnt sl. haust og ítarleg vinna við stöðumat á þjónustu við fatlaða stendur nú yfir í félagsmálaráðuneytinu.

 



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum