Samræmd stúdentspróf 2005
Samræmd stúdentspróf í íslensku, ensku og stærðfræði verða haldin í maí og desember 2005.
Til skólameistara og skólanefnda framhaldsskóla
Samræmd stúdentspróf í íslensku, ensku og stærðfræði verða haldin í maí og desember 2005, sbr. reglugerð um fyrirkomulag og framkvæmd samræmdra stúdentsprófa í framhaldsskólum nr. 196/2003 og lög um framhaldsskóla nr. 80/1996. Einnig er vísað til bréfs menntamálaráðherra til skólameistara og skólanefnda framhaldsskóla, dags. 7. maí 2003 þar sem tilkynnt er að í maí 2005 verði í fyrsta skipti haldin stúdentspróf í þremur námsgreinum.
Samræmd stúdentspróf eru hluti af skilgreindum námslokum til stúdentsprófs og er nemendum sem útskrifast frá og með árinu 2005 skylt að þreyta samræmd stúdentspróf í tveimur námsgreinum.
Prófdagar á haustmisseri 2005 verða sem hér segir:
Íslenska miðvikudagur 30. nóvember kl. 9:00-12:00
Enska fimmtudagur 1. desember kl. 9:00-12:00
Stærðfræði föstudagur 2. desember kl. 9:00-12:00.
Í öllum prófunum er gert ráð fyrir viðbótartíma til kl. 12:45.
Ákvörðun um prófdaga samræmdra stúdentsprófa á haustmisseri 2005 er tekin í samráði við Námsmatsstofnun sem sér um framkvæmd prófanna. Í tengslum við ákvörðun um prófdaga hafði Námsmatsstofnun einnig samráð við formann Félags íslenskra framhaldsskóla.
Reglugerð um fyrirkomulag og framkvæmd samræmdra stúdentsprófa í framhaldsskólum nr. 196/2003 má nálgast á vefsíðu ráðuneytisins. Slóðin er menntamalaraduneyti.is.