Stuðningur við dönskukennslu á Íslandi
Til skóla og annarra hagsmunaaðila
Meðfylgjandi er bæklingurinn Stuðningur við dönskukennslu á Íslandi. Bæklingnum er ætlað að vekja athygli á gildandi samningi milli menntamálaráðuneyta Íslands og Danmerkur um stuðning við dönskukennslu á Íslandi. Jafnframt er hér vakin athygli á auglýsingu menntamálaráðuneytisins, dags. 11. mars sl., um styrki til verkefna sem tilgreind eru í fyrrnefndum samningi. Auglýsingin er aðgengileg á vef ráðuneytisins. Þar er einnig að finna umsóknareyðublað, dansk-íslenska samninginn og fleiri upplýsingar.
Menntamálaráðuneytið fer þess á leit að þér vekið athygli á bæklingnum meðal þeirra er málið varðar í stofnun yðar.