Hoppa yfir valmynd
31. mars 2005 Innviðaráðuneytið

Tillaga til þingsályktunar um ferðamál

Á morgun mun samgönguráðherra mæla fyrir tillögu til þingsályktunar um ferðamál

Tillagan gerir ráð fyrir að samgönguráðherra verði falið að stefna að ákveðnum markmiðum í ferðamálum á tímabilinu 2006-2015 í samráði við ráðherra viðkomandi málaflokka. Þá eru nefndar fjölmargar leiðir og aðgerðir að þeim markmiðum í tillögunni.

Tillagan er byggð á sérstakri ferðamálaáætlun fyrir tímabilið 2006-2015 sem unnin var af stýrihópi skipuðum af samgönguráðherra. Í stýrihópnum voru Magnús Oddsson ferðamálastjóri, sem var formaður, Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri SAF og Helga Haraldsdóttir, skrifstofustjóri í samgönguráðuneytinu.

Þingsályktunartillöguna má nálgast á vef Alþingis, www.althingi.is/altext/131/s/1032.html

Ferðamálaáætlun 2006-2015 (WORD - 1,2MB) (PDF - 1,5MB)

 

 



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum