Reglugerð um dragnótaveiðar
Ráðuneytið hefur í dag gefið út reglugerð um dragnótaveiðar sem kemur í stað eldri reglugerðar með sama nafni. Meginbreyting frá eldri reglugerð felst í því að aðeins er heimilt að veita bátum dragnótaleyfi á einu svæði innan fiskveiðiárs með þeirri undantekningu ef um endurnýjun dragnótabáts sé að ræða.
4. apríl 2005
Sjávarútvegsráðuneytið