Niðurstöður könnunar um viðhorf Norðlendinga til álvers og virkjana
Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið lét IMG Gallup framkvæma fyrir sig könnun þar sem spurt var út í viðhorf manna varðandi álver og virkjanir á Norðurlandi. Könnunin var framkvæmd í gegnum síma á tímabilinu frá 17.-27. febrúar sl. og var úrtakið 2400 manns á aldrinum 16-75 ára sem búa í Skagafirði, Eyjafirði og Þingeyjarsýslum. Úrtakið var slembiúrtak úr þjóðskrá. Svarhlutfall var 71.7%.
Hér að neðan eru niðurstöður könnunarinnar.
Kynning ráðherra á Norðurlandi PDF 1.546 Kb