Hoppa yfir valmynd
7. apríl 2005 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Ný reglugerð um vatnsveitur sveitarfélaga

Félagsmálaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um vatnsveitur sveitarfélaga, sem samin er af nefnd sem í áttu sæti fulltrúar frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samorku og félagsmálaráðuneyti. Einnig var leitað umsagna ýmissa stofnana og hagsmunaaðila um efni reglugerðarinnar.

Að grunni er reglugerðin byggð á eldri reglugerð, nr. 421/1992, með síðari breytingum, en við gerð hennar var tekið mið af þeim breytingum sem urðu á lagaumhverfi vatnsveitna við setningu nýrra laga um vatnsveitur sveitarfélaga sem sett voru á sl. ári.

Reglugerðin tekur gildi við birtingu.

Skjal fyrir Acrobat ReaderReglugerð um vatnsveitur sveitarfélaga (220 KB)



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum