Þorkeli Helgasyni orkumálastjóra veitt tímabundið leyfi frá starfi.
Nr. 9/2005
Fréttatilkynning
Þorkeli Helgasyni orkumálastjóra veitt tímabundið leyfi frá starfi.
Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir, verkfræðingur sett í hans stað.
Þorkell Helgason, orkumálastjóri hefur af persónulegum ástæðum óskað eftir leyfi frá starfi sínu um tveggja mánaða skeið og hefur iðnaðar- og viðskiptaráðherra orðið við þeirri ósk.
Ráðherra hefur í dag sett Ragnheiði Ingu Þórarinsdóttur í embætti orkumálastjóra umrætt tímabil.
Ragnheiður hefur doktorsgráðu í verkfræði frá Danska Tæknisháskólanum og MBA frá Háskóla Íslands. Hún hefur áður starfað sem deildarstjóri hjá Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins og sérfræðingur hjá Iðntæknistofnun Íslands. Ragnheiður hefur undanfarið gegnt stöðu deildarstjóra orkudeildar á orkumálasviði stofnunarinnar.
Reykjavík, 18. apríl 2005