Ellefu tónlistarhópar tilnefndar til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs
Tilnefnt hefur verið til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs. Ellefu tónlistarhópar frá öllum Norðurlöndum keppa um verðlaunin sem afhent verða á Norðurlandaráðsþinginu, en það verður haldið í Reykjavík í október. Verðlaunin eru 350.000 danskar krónur eða um 3,7 milljónir íslenskra króna. Í ár verða verðlaunin veitt norrænni kammersveit.
Allir hóparnir sem tilnefndar eru, eru í fremstu röð á sínu sviði á Norðurlöndum. Sumir þeirra hafa á verkefnaskrá sinni allt frá mjög gömlum verkum til nýsaminna. Hóparnir starfa ýmist einir, með gestatónlistarmönnum eða í mismunandi samsetningum, en allir eiga það sameiginlegt að leggja mikla áherslu á nýsamda og norræna tónlist í verkefnaskrá sinni.
Tónlistarhóparnir sem tilnefndir eru:
- Danmörk:Athelas sinfonietta Copenhagen og LINensemble,klarinett-tríó
- Færeyjar: Aldubáran, kammersveit
- Finnland: Zagros, kammersveit og Avanti! kammerhljómsveit
- Ísland: Caput hópurinn og Kammersveit Reykjavíkur
- Noregur: BIT 20, kammersveit og Cikada kammersveit
- Svíþjóð: Stockholms saxofonkvartett og Axelsson & Nilsson Duo básúna og slagverk.
Tilkynnt verður um verðlaunahafa í Árósum, Danmörku þann 9. júní.
Nánar um tilnefningarnar á vef Norrænu ráðherranefndarinnar...