Hoppa yfir valmynd
23. apríl 2005 Dómsmálaráðuneytið

Dómsmálaráðherra ávarpar ráðstefnu SÞ í Bangkok

Ráðherra á fundi Sameinuðu þjóðanna
23. 4 05 Bangkok Tælandi.

Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, ávarpaði í dag, laugardaginn 23. apríl, elleftu ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um baráttu gegn glæpum og opinbert réttarfar, sem haldin er í Bangkok, höfuðborg Tælands, 18. til 25. apríl

Í ræðu sinni vék ráðherrann að fjórum þáttum, sem setja svip sinn á yfirlýsinguna, sem gefin verður út í lok ráðstefnunnar.

Í fyrsta lagi mikilvægi þess, að einstök ríki yrðu, innan alþjóðareglna og eigin laga, að finna hinn gullna meðalveg til þess að tryggja öryggi borgaranna án þess að ganga um of gegn friðhelgi einstaklingsins. Allar aðgerðir og lagabreytingar sem gerðar væru til þess að berjast við skipulagða glæpastarfsemi, yrðu að taka mið af mannréttindareglum og flóttamannasamningum.

Í öðru lagi nauðsyn þess að virkja hinn almenna borgara til samstarfs við þær opinberar stofnanir, lögreglu og aðra, sem gæta almannaöryggis.

Í þriðja lagi yrði að hindra misnotkun á nýrri tölvu- og fjarskiptatækni í þágu glæpastarfsemi. Við nýtingu þessarar tækni gætu menn í senn stundað lögmæta og ólögmæta iðju og það væri brýnt að sporna við afbrotum á þessu sviði eins og öðrum. Lögregla yrði að hafa nauðsynlegar heimildir til að sinna verkefnum sínum, án þess að tækniframfarir veittu brotamönnum nýtt eða aukið skjól.

Í fjórða lagi bæri að nýta ný úrræði í réttarkerfinu og sagði ráðherrann frá reynslu Íslendinga af verkefninu sem kennt er við Hringinn og byggist á bandarískri hugmyndafræði um uppbyggilega réttvísi (restorative justice). Hin góða reynsla af þessu verkefni hefði leitt til þess, að ný skref til sáttaumleitana milli brotamanns og brotaþola væru í undirbúningi.

Um þrjú þúsund manns sækja ráðstefnuna í Bangkok, þar á meðal ráðherrar frá fjölmörgum löndum. Auk þess að taka þátt í fundum og málþingum hefur ráðstefnugestum verið gefinn kostur á að heimsækja fangelsi og réttarvörslustofnanir í Tælandi.

Björn Bjarnason var á fimmtudag gestur fyrirtækisins Sea Viking í Bangkok, sem er í eigu BlueIce eða Sjóvíkur. Louis Win Naing Chit, forstjóri Sea Viking, kynnti starfsemi fyrirtækisins og bauð ráðherranum að skoða fiskvinnslu þess fyrir utan Bangkok, en hún er rekin er í samvinnu við Tep Kinsho Foods.

 

Í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu,
23. apríl 2005

 



Ráðherra á fundi Sameinuðu þjóðanna
23. 4 05 Bangkok Tælandi.
Ráðherra á fundi Sameinuðu þjóðanna
23. 4 05 Bangkok Tælandi.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum