Ríkisjörðin Randversstaðir Breiðdal laus til ábúðar
Um er að ræða lífstíðarábúð.
Á jörðinni hefur verið rekið fjárbú og er greiðslumark jarðarinnar 258,8 ærgildi.
Umsóknarfrestur er til 24. maí 2005.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást í landbúnaðarráðuneytinu, Sölvhólsgötu 7, Reykjavík, sími 545 9750 eða prenta út eyðublaðið hér neðst á síðunni.
Á jörðinni er íbúðarhús, steinsteypt, 91m² að grunnfleti, byggt árið 1951.
Þak endurbyggt 1987 og húsið einangrað og klætt 1988.
Aðrar eignir á jörðinni eru:
- Fjárhús með áburðarkjallara. Byggingarár 1958, grunnflötur 175 m²
- Hlaða Byggingarár 1958, grunnflötur 146 m², 785 m³
- Fjárhús með áburðarkjallara Byggingarár 1972, grunnflötur 60 m²
- Fjárhús með áburðarkjallara Byggingarár 1980, grunnflötur 60 m²
- Hlaða Byggingarár 1980, grunnflötur 145 m², 754 m³
- Geymsla Byggingarár 1984, grunnflötur 112 m²
- Ræktun Skv. fasteignamati 26,8 ha
Jörðin er nálægt miðri Suðurbyggð og stendur bærinn við fjallsrætur í miðju landinu. Land hennar nær ofan úr fjalli á láglendið niður af bæ, en ekki alla leið að Breiðdalsá.
Umsóknareyðublað um ábúð/leigu á jörð.pdf