Þróunarsjóður leikskóla árið 2005
Úthlutun úr Þróunarsjóði leikskóla árið 2005
Þróunarsjóður leikskóla starfar samkvæmt reglum nr. 163/2001 sem settar eru á grundvelli 5. gr. laga nr. 78/1994 um leikskóla. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að þróunarverkefnum í leikskólum með hliðsjón af aðalnámskrá leikskóla. Með þróunarverkefnum er átt við nýjungar, tilraunir og nýbreytni í leikskólastarfi.
Í janúar sl. var auglýst eftir umsóknum um styrki til þróunarverkefna á tveimur forgangssviðum:
- A. Starf með yngri börnum í leikskóla.
- B. Lýðræði í leikskólastarfi.
Auk þess var auglýst eftir almennum þróunarverkefnum.
Þriggja manna úthlutunarnefnd metur umsóknir og gerir tillögur til menntamálaráðherra um styrkveitingar. Í nefndinni eru fulltrúar frá Háskólanum á Akureyri, Félagi leikskólakennara og menntamálaráðuneytinu. Umsýsla með Þróunarsjóði leikskóla er í höndum Rannsóknarstofnunar Kennaraháskóla Íslands samkvæmt sérstökum samningi við menntamálaráðuneytið.
Menntamálaráðherra hefur ákveðið, að tillögu úthlutunarnefndar, að veita styrki að upphæð alls 2.900 þús. kr. til samtals 8 verkefna.
Eftirtalin verkefni hljóta styrk úr Þróunarsjóði leikskóla skólaárið 2005-2006:
Styrkþegi | Heiti verkefnis | Upphæð | |
---|---|---|---|
Háskólinn á Akureyri Guðrún Alda Harðardóttir og Sigríður Síta Pétursdóttir | Lengi býr að fyrstu gerð | kr. |
1.000.000 |
Hjallastefnan ehf. | Nemendastýrð framkvæmd vals í leikskólastarfi Hjallastefnunnar | kr. |
500.000 |
Leikskólaskrifstofa Kópavogs | Námskrá fyrir elstu börnin í leikskólum Kópavogsbæjar, með sérstakri áherslu á lýðræði barnanna. | kr. |
400.000 |
Leikskólinn Holt | Lifandi lestur, framhald | kr. |
100.000 |
Leikskólinn Lyngholt | Nám í gegnum íþróttir | kr. |
250.000 |
Leikskólinn Pálmholt | Einn, tveir og byrja! - Námsefni fyrir þau yngstu | kr. |
250.000 |
Leikskólinn Tröllaborgir | Aukin gæði náms - þróunarstarf í leikskólanum Tröllaborgum | kr. |
200.000 |
Seljaborg | Félagsfærninám, sjálfstæðir einstaklingar | kr. |
200.000 |
Samtals | kr. |
2.900.000 |