Reglugerð nr. 453/2005 um breytingu á reglugerð nr. 196/2003 um fyrirkomulag og framkvæmd samræmdra stúdentsprófa í framhaldsskólum
Breyting hefur verið gerð á reglugerð nr. 196/2003 um fyrirkomulag og framkvæmd samræmdra stúdentsprófa í framhaldsskólum. Á eftir ákvæði til bráðabirgða komi ný málsgrein svohljóðandi: Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 4. gr. er þeim nemendum sem úrskrifast með stúdentspróf í lok vorannar 2005 ekki skylt að hafa þreytt samræmd stúdentspróf í tveimur námsgreinum.