Erindi frá Skýrslutæknifélagi Íslands
Þátttaka Skýrslutæknifélags Íslands í ráðstefnu um endurskoðun stjórnarskrárinnar
Stjórn Skýrslutæknifélags Íslands óskar eftir því að taka þátt í ráðstefnu um endurskoðun stjórnarskrárinnar laugardaginn 11. júní nk. Óskað er eftir því að taka þátt í 1. málstofu um lýðræði á upplýsingaöld og 3. málstofu þar sem fjallað verður um Ísland í alþjóðlegu umhverfi.
Félagið vill vekja athygli á hugmyndum sem tengjast upplýsingatækni og miklum áhrifum hennar á samfélagið. Þessar hugmyndir gætu stuðlað að upplýstri umræðu um stjórnarskrána og umbætur á henni.
Hugmyndirnar lúta m.a. að eftirtöldum þáttum þar sem fyrstu fimm þættirnir tengjast 1. málstofu en sá síðasti tengist frekar 3. málstofu:
- Birting laga og reglna með rafrænum hætti (sbr. 27. gr. stjórnarskrárinnar)
- Rafrænar kosningar og skoðanakannanir (sbr. t.d. 31. og 33. gr. stjskr.)
- Virk þátttaka almennings á milli kosninga með aðstoð upplýsingatækni
- Áhrif upplýsingatækni á persónuvernd og friðhelgi einkalífs - Aukin skráning persónuupplýsinga, m.a. með netvöktun og eftirlitsmyndavélum, og auðveldur aðgangur að netinu sem tjáningarformi leiðir til aukinna krafna um að staðið sé vörð um persónuvernd og friðhelgi einkalífs.
- Áhrif upplýsingatækni á tjáningarfrelsið (sbr. 73. gr. stjskr.) - Auðveldur aðgangur að netinu sem miðli getur leitt til þess að standa þarf vörð um tjáningarfrelsið og vekur um leið spurningar um hvort vernda þurfi rétt almennings til upplýsinga betur en hingað til.
- Notkun og vernd íslenskrar tungu og áhrif upplýsingatækni á þennan þátt
Skýrslutæknifélag Íslands er félag einstaklinga, fyrirtækja og stofnana á sviði upplýsingatækni. Félagsmenn eru um 800 talsins.
Helstu markmið félagsins eru:
- að breiða út þekkingu á upplýsingatækni og stuðla að skynsamlegri notkun hennar
- að skapa vettvang fyrir faglega umræðu og tengsl milli félagsmanna
- að koma fram opinberlega fyrir hönd fólks í upplýsingatækni
- að stuðla að góðu siðferði við notkun upplýsingatækni
- að styrkja notkun íslenskrar tungu í upplýsingatækni
Virðingarfyllst, f. hönd stjórnar
Hólmfríður Arnardóttir, framkvæmdastjóri
Skýrslutæknifélag Íslands
Laugavegi 178
105 Reykjavík
Sími 553 2460/ 690 6070
[email protected]
www.sky.is