Hoppa yfir valmynd
17. maí 2005 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir til framhaldsnáms í Japan

Japanska ríkisstjórnin ætlar að veita Íslendingum Mombukagakusho (MEXT) styrki til framhaldsnáms í Japan.

Japanska ríkisstjórnin ætlar að veita Íslendingum Mombukagakusho (MEXT) styrki til framhaldsnáms í Japan. Styrkurinn er veittur til tveggja ára fyrir þá sem hefja nám í apríl 2006 en til 18 mánaða fyrir þá sem kjósa að hefja nám í október 2006. Flugfargjöld og skólagjöld eru greidd og fá styrkþegar mánaðarlega greiðslu, 175.000 Yen sem er nálægt 105 þúsund krónum og auk þess fjárupphæð við komuna til landsins.

Umsækjendur þurfa að hafa lokið B.A. eða B.S. gráðu áður en námið hefst og geta aðeins sótt um nám í sínum sérgreinum eða á skyldum sviðum. Skilyrði er að þeir séu fæddir 2. apríl 1971 eða síðar. Upplýsingar um skóla og prófessora má fá hjá Sendiráði Japans svo og allar upplýsingar um nánari skilyrði. Kynningarfundur verður haldinn í sendiráðinu 19. maí nk. kl. 16:00.

Fullgerðar umsóknir þurfa að berast Sendiráði Japans í síðasta lagi 21. júní 2005 en umsóknir má nálgast hjá sendiráðinu eða menntamálaráðuneytinu. Þeir umsækjendur sem koma til greina verða boðaðir í viðtal til sendiráðsins í ágúst 2005.  Sendiráð Japans í samvinnu við menntamálaráðuneytið á Íslandi mun sjá um fyrsta úrtak umsækjenda. Lokaákvörðun verður svo tekin af MEXT í Japan.

Áhugasamir geta haft samband við Sendiráð Japans á [email protected] og í síma 510-8600.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum