Hoppa yfir valmynd
20. maí 2005 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Fundir fjármálaráðherra í Kaupmannahöfn 19.-20. maí

Mynd með fréttatilkynningu nr. 7/2005. Nýr vefur um norræn skattamál kynntur; frá vinstri Paul Schlüter, fv. forsætisráðherra Dana, Geir H. Haarde, Josef Motzfeldt frá Grænlandi og Lasse Wiklöf frá Ál
Mynd með fréttatilkynningu nr. 7/2005. Nýr vefur um norræn skattamál kynntur; frá vinstri Paul Schlüter, fv. forsætisráðherra Dana, Geir H. Haarde, Josef Motzfeldt frá Grænlandi og Lasse Wiklöf frá Ál

Fjármálaráðuneytið, fréttatilkynning nr. 7/2005

Geir H. Haarde, fjármálaráðherra hefur í gær og í dag setið þrjá ráðherrafundi í Kaupmannahöfn.

Í gær var haldinn fyrsti fundur ráðherraráðs Norræna fjárfestingarbankans eftir að Eistar, Lettar og Litháar gerðust aðilar að bankanum. Gerð var grein fyrir afkomu bankans 2004, sem var mjög góð, og framtíðarhorfum. Geir H. Haarde lætur af formennsku í ráðinu 1. júní og við tekur Bent Bentsen, efnahagsráðherra Dana.

Einnig var í gær haldinn árlegur fundur fjármálaráðherra Eystrasaltsráðsins, þ.e. Norðurlanda, Eystrasaltslanda auk Þýskalands og Póllands. Viðfangsefni þess fundar var m.a. umfjöllun um þau tækifæri fyrir svæðið sem felast í stækkun Evrópusambandsins en Svíar hafa haft frumkvæði að sérfræðingaskýrslu um það efni. Einnig gerði fjármálaráðherra Póllands grein fyrir stöðu efnahagsmála þar í landi og þeim breytingum sem aðild þeirra að ESB hefur haft í för með sér.

Á fundi norrænu fjármálaráðherranna, sem haldinn var í dag, voru til umræðu hefðbundin samstarfsmálefni ráðherranna. Ítarlega var rætt um stöðu og horfur í efnahagsmálum og skattabreytingar í löndunum. Á fundi ráðherranna var formlega opnuð norræn vefsíða um skattamál en hún er hluti af viðamiklu verkefni sem unnið hefur verið að á undanförnum árum og snýr að því að brjóta niður hindranir í samskiptum borgaranna yfir landamæri. Skattamál hafa verið talinn einn veigamesti þátturinn sem snýr að almenningi þar sem hægt er að ná árangri í þessum efnum og eru bundnar miklar vonir við vefsíðuna. Norræna vefsíðan um skattamál er samstarfsverkefni ríkisskattstjóraembætta allra Norðurlandanna en öll forritun hefur verið unnin af starfsmönnum hugbúnaðarsviðs RSK og síðan er vistuð hér á landi. Vefsíðuna er að finna hér: www.nordisketax.net.

Nánari upplýsingar veita Ragnheiður E. Árnadóttir, aðstoðarmaður fjármálaráðherra (862 0028) og Sigurður Guðmundsson, sérfræðingur á efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins (895 9598).

Mynd með fréttatilkynningu nr. 7/2005. Nýr vefur um norræn skattamál kynntur; frá vinstri Paul Schlüter, fv. forsætisráðherra Dana, Geir H. Haarde, Josef Motzfeldt frá Grænlandi og Lasse Wiklöf frá Ál

Nýr vefur um norræn skattamál kynntur; frá vinstri Paul Schlüter, fv. forsætisráðherra Dana, Geir H. Haarde, Josef Motzfeldt frá Grænlandi og Lasse Wiklöf frá Álandseyjum.

Fjármálaráðuneytinu, 20. maí 2005



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum