Hoppa yfir valmynd
2. júní 2005 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Forstjóri ÁTVR lætur af störfum

Fjármálaráðuneytið, fréttatilkynning nr. 8/2005

Höskuldur Jónsson, forstjóri Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins (ÁTVR), hefur óskað eftir lausn frá embætti frá og með 1. september n.k. og hefur fjármálaráðherra fallist á það. Höskuldur hefur verið forstjóri ÁTVR í tæplega 20 ár, eða frá 1. apríl 1986. Þar áður var hann ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu um 11 ára skeið.

Fjármálaráðuneytinu, 2. júní 2005



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum