Forsætisráðherra vígir Jöklasetur
Frétt nr.: 27/2005
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra vígði á föstudag nýtt Jöklasetur á Höfn í Hornafirði. Vígslan fór fram með þeim hætti að ráðherra braut ísinn í bókstaflegri merkingu. Safnið sem þarna var opnað heitir Ís-Land og er eitt hið glæsilegasta sinnar tegundar. Ríkissjóður styrkir þetta verkefni með fjárframlagi.
Í Reykjavík, 3. júní 2005.