Hoppa yfir valmynd
9. júní 2005 Innviðaráðuneytið

12. júní rennur út frestur til að skrá sig til þátttöku á Vestnorden ferðakaupstefnunni

Síðastliðinn 20 ára hafa Ferðamálaráð Íslands, Grænlands og Færeyja staðið að Vestnorden og skiptst á um að halda kaupstefnuna. Í ár er komið að Grænlendingum en kaupstefnan verður haldin í Norðurbryggjuhúsinu í Kaupmannahöfn.

12. júní næstkomandi rennur út frestur til að skrá sig til þátttöku á Vestnorden ferðakaupstefnunni, sem haldin verður dagana 12.-14. september næstkomandi.

Sýnendur koma frá Vestnorrænu löndunum þremur auk þess sem fyrirtæki frá Danmörku og Settlandseyjum hafa taka þátt. Á Vestnorden hitta sýnendurnir ferðaheildsala hvaðanæva að úr heiminum sem eru að selja ferðir til norrænu landanna og eiga með þeim stutta fundi sem búið er að tímasetja áður en kaupstefnan hefst.

Íslendingar eru jafnan fjölmennastir á Vestnorden og þegar hafa mörg fyrirtæki tilkynnt þátttöku. Íslensk fyrirtæki sem hug hafa á þáttöku geta snúið sér til markaðssvið Ferðamálaráðs Íslands, sími 535-5500, eða sent póst á [email protected]

Skráning fer fram á heimasíðu sýningarinnar www.vestnorden.gl/


 



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum