Hoppa yfir valmynd
16. júní 2005 Matvælaráðuneytið

Auglýsing til sveitarstjórna um úthlutun byggðakvóta 2005

Auglýsing til sveitarstjórna

um úthlutun byggðakvóta.

                      

 

Með tilkynningu þessari vill ráðuneytið gefa sveitarstjórnum kost á að sækja um byggðakvóta. Sveitarstjórnir eru umsóknaraðilar fyrir byggðarlögin innan sveitarstjórnar­umdæmanna og annast þær öll samskipti við ráðuneytið, sem nauðsynleg eru vegna úthlutunarinnar. Umsóknarfrestur um byggðakvóta er til 7. júlí 2005. Umsóknir sem berast eftir þann tíma verða ekki teknar til greina.

Til greina við úthlutun byggðakvóta koma:

1.      Byggðarlög með færri íbúum en 1.500, sem lent hafa í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi og sem háð eru veiðum og vinnslu á botnfiski. Minni byggðarlög teljast í þessu sambandi byggðarlög. Skal sveitarstjórn gera ráðuneytinu ítarlega grein fyrir vanda byggðarlagsins sem talið er að rekja megi til samdráttar í sjávarútvegi á síðustu árum og fyrir þýðingu veiða og vinnslu botnfisks fyrir það byggðarlag.

2.      Byggðarlög sem orðið hafa fyrir óvæntri skerðingu á heildaraflaheimildum fiskiskipa sem gerð hafa verið út og landað afla í viðkomandi byggðarlögum og sem veruleg áhrif hefur haft á atvinnuástand í þeim. Sveitarstjórnir skulu leggja fram gögn, sem sýna fram á að í tilteknu byggðarlagi hafi óvænt skerðing heildaraflaheimilda fiskiskipa sem gerð eru þaðan út og landað hafa þar afla, haft veruleg neikvæð áhrif á atvinnuástand í viðkomandi byggðarlagi.

Að fengnum umsóknum sveitarfélaga tekur ráðuneytið ákvörðun um hvernig byggðakvótinn skiptist milli einstakra byggðarlaga og tilkynnir sveitarstjórnum niðurstöðuna. Jafnframt verður sveitarstjórnum þá gefinn kostur á því að gera tillögur um skiptingu byggðakvótans milli fiskiskipa.

 

Sjávarútvegsráðuneytið,  7. júní 2005.

 



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum