Hoppa yfir valmynd
8. júlí 2005 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Norrænir starfsmenntunarstyrkir

Norrænir starfsmenntunarstyrkir - auglýsing framlengd.

Menntamálaráðuneyti Noregs og Svíþjóðar veita á námsárinu 2005-2006 nokkra styrki handa Íslendingum til náms við fræðslustofnanir þar í landi. Styrkirnir eru einkum ætlaðir til framhaldsnáms eftir iðnskólapróf eða hliðstæða menntun, til undirbúnings kennslu í iðnskólum eða framhaldsnáms iðnskólakennara, svo og ýmiss konar starfsmenntunar sem ekki er unnt að afla á Íslandi. Fjárhæð styrks í Noregi er um 25.000 n.kr. og í Svíþjóð 20 - 25.000 s.kr.

Frestur til að skila inn umsóknum, ásamt staðfestum afritum prófskírteina og meðmælum, er hér með framlengdur til 20. júlí nk. Umsóknir skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, á sérstökum eyðublöðum sem þar fást.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum