Hoppa yfir valmynd
4. ágúst 2005 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Skipun í embætti forstjóra ÁTVR

Fjármálaráðuneytið, fréttatilkynning nr. 12/2005

Fjármálaráðherra hefur skipað Ívar J. Arndal aðstoðarforstjóra í embætti forstjóra ÁTVR frá 1. september nk.

Ívar hefur gegnt starfi aðstoðarforstjóra ÁTVR frá árinu 2000 og var settur forstjóri í eitt ár 2003 – 2004. Hann er vélaverkfræðingur að mennt, en hefur einnig meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu, auk náms í viðskipta- og rekstrarfræði.

 

Fjármálaráðuneytinu, 04. ágúst 2005



 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum