Hoppa yfir valmynd
11. ágúst 2005 Innviðaráðuneytið

SAMIK auglýsir styrki

SAMIK auglýsir styrki til að efla samstarf Íslands og Grænlands á sviði ferðaþjónustu.

SAMIK auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna sem aukið geta samstarf Íslands og Grænlands á sviði ferðaþjónustu.

Styrkirnir geta aldrei numið nema 50% af heildarkostnaði viðkomandi verkefnis.

Umsóknir skulu sendar samgönguráðuneytinu, merktar SAMIK, fyrir 1. spetember nk. á eyðublöðum sem þar fást. Eyðublöðin er einnig að finna á heimasíðu ráðuneytisins. Allar upplýsingar þurfa að vera á dönsku eða ensku.

Nauðsynlegt er að leggja fram kostnaðaráætlun þess verkefnis sem sótt er um styrk til auk nákvæmra upplýsinga um umsækjendur, verkefnið og tilgang þess.

Stefnt er að því að ákvörðun um úthlutun styrkjanna liggi fyrir í lok september.

Fyrri helmingur styrksins er að jafnaði greiddur út þegar ákvörðun um styrkveitingu liggur fyrir og seinni helmingur þegar viðkomandi verkefni er lokið.

Rétt er að benda á að eldri umsóknir er nauðsynlegt að endurnýja.

Nánari upplýsingar veitir Birgir Þorgilsson, stjórnarmaður SAMIK, í síma 553 9799.

Umsóknareyðublað



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum