Hoppa yfir valmynd
22. ágúst 2005 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Evrópskur tungumáladagur 26. september 2005

Menntamálaráðuneytið vill vekja athygli á mikilvægi tungumálakunnáttu og símenntunar í tungumálum.

Menntamálaráðuneytið hvetur skóla, aðrar fræðslustofnanir og hagsmunaaðila til að minnast Evrópsks tungumáladags 2005 hinn 26. september nk. og vekja þannig með einhverjum hætti athygli á mikilvægi tungumálakunnáttu og símenntunar í tungumálum. Að frumkvæði Evrópuráðsins hefur tungumáladagsins verið minnst með ýmsu móti í Evrópulöndum undanfarin ár, þ.m.t. á Íslandi. Hjálagt fylgir bæklingur með fjölmörgum hugmyndum að mögulegum verkefnum og aðgerðum á tungumáladeginum. Efni bæklingsins má einnig nálgast á vef ráðuneytisins. Slóðin er /raduneyti/althjodlegt-samstarf/nr/384 og menntagátt.is. Þar er einnig að finna frekari upplýsingar um tungumáladaginn. Jafnframt er bent á vef Evrópuráðsins vegna tungumáladagsins þar sem m.a. er unnt að skrá viðburði dagsins, senda rafrænt póstkort og taka þátt í spurningaleik. Slóðin er www.coe.int/edl.

Markmið Evrópska tungumáladagsins eru einkum eftirfarandi:

Vekja athygli á mikilvægi tungumálakunnáttu og fjölbreytts tungumálanáms til að auka fjöltyngi og skilning á ólíkri menningu þjóða

Stuðla að því að viðhalda fjölbreytileika tungumála og menningar í Evrópu

Hvetja til símenntunar í tungumálanámi, bæði innan skólakerfisins og utan þess.

Í ráðuneytinu má nálgast íslenska útgáfu sérstaks veggspjalds frá Evrópuráðinu.

Dagskrá málþings sem menntamálaráðuneytið mun efna til í tilefni dagsins verður nánar auglýst síðar.

Þess er vænst að Evrópskur tungumáladagur 2005 hafi jákvæð áhrif á tungumálanám og tungumálakennslu og verði einstaklingum hvatning til símenntunar á því sviði.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum