Hoppa yfir valmynd
29. ágúst 2005 Dómsmálaráðuneytið

Próf fyrir skjalaþýðendur og dómtúlka

Löggildingarpróf fyrir skjalaþýðendur og dómtúlka verður haldið í febrúar 2006 að undangengnu undirbúnings- og kynningarnámskeiði, sem haldið verður á vegum Þýðingarseturs Háskóla Íslands, Nýja Garði, Reykjavík, sími 525-4192

Námskeiðið hefst í október nk. og er ráðgert að nýta m.a. tvo laugardaga í október og tvo laugardaga í nóvember til námskeiðshaldsins, en námskeiðinu mun ljúka í desember nk. Próftökum er skylt að sækja námskeiðið.

Umsóknir á eyðublöðum sem fást í ráðuneytinu og á vef ráðuneytisins skulu berast til ráðuneytisins í síðasta lagi 30. september 2005. Nánari upplýsingar í síma 545-9006 og á vef ráðuneytisins.

Dóms- og kirkjumálaráðuneytið,
28. ágúst 2005



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum