Hoppa yfir valmynd
2. september 2005 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Íþróttasjóður

Framlög til eftirfarandi verkefna á sviði íþrótta.

Úr Íþróttasjóði, sem starfar samkvæmt íþróttalögum nr. 64/1998, sbr. reglugerð nr. 188/1999 og reglugerð nr. 388/2001 um breyting á þeirri reglugerð, má veita framlög til eftirfarandi verkefna á sviði íþrótta:

  1. Sérstakra verkefna á vegum íþróttafélaga og samtaka þeirra sem miða að því að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana
  2. Útbreiðslu- og fræðsluverkefna
  3. Íþróttarannsókna
  4. Verkefna samkvæmt 13. gr. íþróttalaga.

Umsóknir um stuðning úr Íþróttasjóði vegna ársins 2006 skulu berast Íþróttanefnd, menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, á þar til gerðum eyðublöðum, í síðasta lagi 1. október 2005. Reglugerð sjóðsins og eyðublöð fást í afgreiðslu menntamálaráðuneytisins og á vef þess, menntamalaraduneyti.is.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum