Styrkir vegna stuðnings við dönskukennslu
Samkvæmt samningi milli menntamálaráðuneyta Íslands og Danmerkur um stuðning við dönskukennslu á Íslandi leggur menntamálaráðuneytið árlega fram fjármagn til verkefna á eftirfarandi sviðum, sbr. 4. gr. samningsins:
1. Endurmenntunarnámskeiða fyrir dönskukennara í grunn- og framhaldsskólum
2. Námsefnisgerðar í dönsku fyrir grunn- og framhaldsskóla
3. Rannsókna og þróunar á sviði náms og kennslu í dönsku sem erlends tungumáls
4. Vitundarvakningar um mikilvægi dönskukunnáttu.
Hér með er auglýst að nýju eftir umsóknum um styrki til verkefna á þessum sviðum, sbr. einnig auglýsingu ráðuneytisins, dags. 11. mars 2005, en við úthlutun styrkja í tengslum við þá auglýsingu var ekki ráðstafað öllu því fé sem kveðið er á um í samningnum.
Umsóknir skulu berast menntamálaráðuneytinu í síðasta lagi 30. september nk. á sérstökum eyðublöðum sem þar fást og sem jafnframt er að finna á vef ráðuneytisins, menntamalaraduneyti.is. Á vefnum er einnig að finna fyrrnefndan samning menntamálaráðuneyta Íslands og Danmerkur. Nánari upplýsingar veitir María Gunnlaugsdóttir, deildarsérfræðingur í menntamálaráðuneytinu, sími 545 9500, netfang: [email protected].