Hoppa yfir valmynd
2. september 2005 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Úthlutun styrkja til miðlunar menningarefnis á landsbyggðinni 2005

Styrkirnir eru veittir sem hluti af átaki um menntun og menningu á landsbyggðinni.

Í júní auglýsti menntamálaráðuneytið styrki til skráningar og miðlunar menningarefnis á landsbyggðinni. Styrkirnir eru veittir sem hluti af átaki um menntun og menningu á landsbyggðinni, sem er samstarfsverkefni menntamála- og iðnaðarráðuneytisins í tengslum við byggðaáætlun. Til ráðstöfunar voru tíu milljónir. Alls bárust 54 umsóknir og sótt var um rúmlega 80 milljónir.

Eftirtalin verkefni hlutu styrki:

Háskólinn á Hólum og Byggðasafn Skagfirðinga, Ragnheiður Traustadóttir, Upplýsingabrunnurinn Greipur - miðlun fornleifarannsókna í Skagafirði: kr. 1.000.000

Uppsveitir Árnessýslu, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Þjórsárdalur - minjar frá Söguöld: kr. 1.000.000

Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða, Gagnvirkt fræðsluforrit á neti um Gísla sögu Súrssonar: kr. 700.000

Fjölbrautarskóli Vesturlands og Bókaútgáfan Bjartur, Hjálmaklettur - kennsluvefur um Egilssögu: kr. 700.000

Minjasafn Egils Ólafssonar á Hnjóti, Upplýsinga- og fræðsluvefurinn Latrabjarg.is: kr. 700.000

Skriðuklaustursrannsóknir, Tölvutæk endurgerð miðaldaklausturs á Skriðu í Fljótsdal: kr. 700.000

Nýsköpunarstofa Vestmannaeyja, Horfinn heimur - rafrænt gosminjasafn: kr. 700.000

Grettistak ses., Á Grettisslóð, skráning upplýsinga um fornleifar, örnefni og sögustaði sem tengjast Grettissögu: kr. 700.000

Steinasafn Petru, Austurbyggð, Skráning á steinasafni Petru: kr. 700.000

Safnahúsið á Húsavík, Þingeyskur sögugrunnur - kortagerðarverkefni: kr. 500.000

Fornleifafræðistofan, Sagan í sandinum, nunnuklaustrið á Kirkjubæ: kr. 500.000

Uppsveitir Árnessýslu, Skúli Sæland, Sögubrot síðustu alda, menningarsaga uppsveita Árnessýslu: kr. 500.000

Fornleifavernd ríkisins, Sauðárkróki, Stöðlun fornleifaskráningar á Íslandi: kr. 500.000

Menningarsetrið að Útskálum, Vefsjá með prestsetrum og kirkjum: kr. 500.000

Safn Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri, Gerð vefsíðu fyrir safnið: kr. 300.000

Steingrímur Kristinsson, sksiglo.is, Ljósmyndasafn Steingríms: kr. 300.000



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum