Hoppa yfir valmynd
16. september 2005 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Sérfræðingur á skrifstofu menntamála

Menntamálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings á skrifstofu menntamála (skóla- og símenntunardeild).

Menntamálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings á skrifstofu menntamála (skóla- og símenntunardeild). Um er að ræða fullt starf.

Leitað er að háskólamenntuðum einstaklingi með reynslu og þekkingu á íslenska menntakerfinu, einkum starfsemi framhaldsskóla með áherslu á þjónustu við nemendur með sérþarfir og lausnir fyrir nemendur með námsörðugleika. Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð, góð kunnátta í ensku og einu Norðurlandamáli og þekking á nýtingu upplýsingatækni eru nauðsynlegir kostir ásamt ritfærni og hæfni í mannlegum samskiptum.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem allra fyrst. Laun greiðast samkvæmt launakerfi Félags háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins. Nánari upplýsingar veitir Þórir Ólafsson, deildarstjóri skóla- og símenntunardeildar.

Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil sendist menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Umsóknarfrestur er til 10. október 2005.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum