Hoppa yfir valmynd
22. september 2005 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Málþing menntamálaráðuneytis á Evrópskum tungumáladegi 26. september 2005

Markmið tungumálakennslu

Markmið tungumálakennslu

Á Evrópskum tungumáladegi mánudaginn 26. september nk. gengst menntamálaráðuneytið fyrir málþingi í Norræna húsinu kl. 15:00-17:00. Þar verða kynntar tillögur námskrárhópa í erlendum tungumálum og í íslensku sem öðru tungumáli vegna endurskoðunar aðalnámskráa grunn- og framhaldsskóla. Í lok málþingsins veitir menntamálaráðherra Evrópumerkið, en það er viðurkenning framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og menntamálaráðuneytis fyrir nýbreytniverkefni í tungumálakennslu.

Málþingið er öllum opið og þátttakendum að kostnaðarlausu. Ekki þarf að tilkynna þátttöku.

Dagskrá

Málþingsstjóri, Eygló Eyjólfsdóttir, setur málþingið

Tungumálanám í ljósi nýrrar aðalnámskrár
Auður Torfadóttir, dósent við Kennaraháskóla Íslands

Breyttar áherslur í efri bekkjum grunnskóla
Erna Jessen, dönskukennari í Álftamýrarskóla

Samfellt tungumálanám – skil milli skólastiga
Þórey Einarsdóttir, enskukennari við Menntaskólann við Hamrahlíð

Sameiginleg markmið í þriðja erlenda tungumáli
Margrét Helga Hjartardóttir, frönskukennari í Kvennaskólanum í Reykjavík

Íslenska sem annað tungumál
Ásta Björk Sveinbjörnsdóttir, íslenskukennari við Fjölbrautaskólann við Ármúla

Umræður

Tónlistaratriði
Kór Flensborgarskólans í Hafnarfirði. Stjórnandi Hrafnhildur Blomsterberg

Afhending Evrópumerkisins í tungumálakennslu (European Label)
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra

Verðlaunaverkefni kynnt.

Málþingi slitið
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra

Léttar veitingar í boði menntamálaráðherra



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum