Hoppa yfir valmynd
22. september 2005 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir til leiklistarstarfsemi

Umsóknarfrestur er til 19. október 2005.

Auglýst er eftir umsóknum um styrki á árinu 2006 til starfsemi atvinnuleikhópa er ekki hafa sérgreinda fjárveitingu á fjárlögum.

Umsóknir gætu miðast við einstök verkefni eða samfellt starf til lengri tíma og verður afstaða tekin til skiptingar fjárins eftir eðli umsóknanna og eftir því sem fé á fjárlögum 2006 í þessu skyni kann að segja til um.

Umsóknir skulu berast til menntamálaráðuneytis, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir kl. 16:00 miðvikudaginn 19. október 2005 á eyðublöðum sem þar fást. Eyðublöðin er einnig að finna á vef ráðuneytisins, menntamalaraduneyti.is. Umsóknarfrestur er til 19. október 2005.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum